Ég hef ekki verið mikið í tölvunni að undanförnu.. Ástæðan er sú
að ég er búinn að vera með massíva vöðvabólgu í hægri hendi.
Ég hef átt massívt erfitt með að skrolla og skrifa og þess háttar.
Ég held að bólgan hafi komið sökum of mikils píanóleiks og
tölvuskrolls. Þetta er frekar freaky... Ef maður horfir vel á
bólguna má sjá hana púlsera. En, kallinn er bara að mönssja Ibufen
eins og Cocoa puffs og þetta er allt að koma.
Ég fer stundum í labbitúra á kvöldin hérna í the big O. Það
er ótrúlegt að það eru alltaf einhverjir sveittir Danir að syngja
viðbjóðslega fótbólta ógeðisdrullu söngva alltaf þegar ég er útað
labba... svona "IIIOOOOÚÚÚÚheeeeyyyjjóoooooooo
OOOBBBBBB!" Ég verð anxious útaf svona liði. Oj,
djöfull þoli ég það ekki. Svo er maður að chilla og allt
í einu heyrir maður drunur í bakgrunninum og þá brunar
eitthvað ógeð framhjá manni á bílnum sínum geðveikt hratt...
Djöfull er það stressandi.. Mér líkar ekkert sérstaklega vel
við bíla.
Annars var ég nú samt sem áður að fá miða á Svíþjóð-Danmörk í
parken í júní. Ég skil eiginlega ekki af hverju ég er að
fara.. Ég hef ekki einu sinni það gaman af fótbolta og það verður
örugglega ekki skortur á sveittum syngjandi dönskum fótboltabullum
á þessum leik. En.. svona er þetta þegar maður lofar
einhverju á djamminu og verður síðan að taka ábyrgð á því..
Ég lendi of oft í þessu. Verð að fara hætta lofa hlutum á
djamminu.. djyys.
Að öðru leyti gengur bara fínt þessa dagana.. Það er meira að
segja bara frekar spennandi að vera ég þessa dagana.. meira
spennandi en oft áður alla vega. En ég verð að fara
stöööödddíi fyrir próf sem ég er að fara í á föstudaginn
í hjartasjúkdómum.
Set bráðum inn nýjar myndir
Glagg bam